flugfréttir

Framleiðsla á 737 MAX er hafin á ný eftir 4 mánaða hlé

- Enn enginn tímarammi varðandi hvenær vélarnar fljúga á ný

28. maí 2020

|

Frétt skrifuð kl. 07:37

Hlé var gert á framleiðslu á Boeing 737 MAX þotunum í janúar en framleiðslan er núna hafin að nýju

Boeing tilkynnti í gær að framleiðsla á Boeing 737 MAX þotunum væri hafin á ný eftir 4 mánaða hlé en framleiðandinn gerði hlé á framleiðslunni í byrjun ársins.

Fram kemur að framleiðslan fari hægt af stað til að byrja með en Boeing vill ekki gefa upp hver framleiðsluhraðinn verður fyrstu um sinn með tilliti til fjölda flugvéla á mánuði.

Boeing tilkynnti í apríl að til stæði að hefja afhendingar að nýju á þriðja ársfjórðungi þessa árs og er stefnt að því að framleiða 31 þotu á mánuði frá og með næsta ári eða eina Boeing 737 MAX þotu á dag.

Þá hefur framleiðandinn ekki viljað gefa upp hvort einhver ný tíðindi séu af vottunarferlinu hjá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) en röð vandamála sem hafa komið upp hafa orðið til þess að vinna við að lagfæra þau hefur dregist verulega á langinn.

„Vinna að þessu verkefni og þessu ferli heldur áfram og við munum einnig halda áfram að vera fastir á því að neita að svara neinu varðandi tímaramma og verður ekki gefið neitt upp hvenær þessu ferli lýkur“, segir í yfirlýsingu frá FAA.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga