flugfréttir
Lenti á lokaðri flugbraut til þess að komast á ströndina
- Einkaflugmaður á Pilatus PC-12 vildi ólmur komast í sólbað
Pilatus PC-12 flugvélin sem um ræðir ber skráninguna N412MD
Slökkvilið á herflugvelli í Wales í Bretlandi þurfti að hafa afskipti af flugmann einum sl. mánudag eftir að hann lenti flugvél sinni þrátt fyrir að flugvöllurinn var lokaður.
Um var að ræða einkaflugvél af gerðinni Pilatus PC-12 sem lenti á Anglesey-herflugvellinum í bænum Valley eftir flug frá Fairoaks í Surrey-héraði suður af London en flugmaðurinn
vildi ólmur komast í sólbað á ströndinni í bænum og skipti sér lítið af því að flugvöllurinn væri lokaður vegna áhrifa af kórónaveirufaraldrinum.
Flugmaðurinn stöðvaði flugvélina á flugvellinum eins nálægt ströndinni og hann gat en herlið og aðilar á vegum flugvallarins ásamt herlögreglu veittu flugmanninum
„móttöku“ þar sem þeir töldu að flugvélin hefði lent á vellinum vegna neyðarástands.
Það virtist hinsvegar ekki vera raunin og var flugmanninum gerð grein fyrir því að flugvöllurinn væri lokaður en völlurinn er notaður af breska flughernum til þess að þjálfa herflugmenn á orrustuþotur.
Flugmaðurinn flaug til Wales frá bænum Fairoaks sem staðsettur er skammt suðvestur af London
Þá voru einnig framkvæmdir sem stóðu yfir á flugvellinum en flugmaðurinn ákvað að snúa við aftur til síns heima og yfirgaf flugvöllinn
eftir að hafa rætt við öryggislið og herlögreglu.
Lögreglan í Norður-Wales er með málið inn á borði hjá sér og er verið að skoða hvort að flugmaðurinn hafi brotið sóttvarnarlög
með því að lenda á flugvellinum en þar sem flugmaðurinn lenti án leyfis þar sem flugbrautin er lokuð samkvæmt NOTAM hefur atvikið
verið tilkynnt til breskra flugmálayfirvalda.
Einkaflugvélum er heimilt að nota Anglesey-flugvöllinn en farið er fram á að sótt sé um heimild með 24 tíma fyrirvara til þess að ganga úr skugga
um að flugumferð trufli herstarfsemina á vellinum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.