flugfréttir
TUI nær samkomulagi um skaðabætur vegna 737 MAX
- Afhendingum á fleiri MAX-þotum frestað um tvö ár
Kyrrsettar Boeing 737 MAX þotur frá flugfélaginu TUI
Flugfélagið TUI hefur tilkynnt að félagið hafi náð samkomulagi um skaðabætur við Boeing vegna Boeing 737 MAX vélanna á sama tíma og félagið hefur gert nýja afhendingaráætlun við flugvélaframleiðandann.
„Við höfum náð sanngjörnum sáttmála sem á eftir að styrkja samvinnu okkar við Boeing til lengri tíma
litið og munu skaðabæturnar bæta fyrir mestan hluta þess fjárhagstjóns sem við urðum fyrir vegna
kyrrsetningu Boeing 737 MAX vélanna“, segir Fritz Joussen, framkvæmdarstjóri TUI Group.
Með þessu hefur TUI náð að draga stórlega úr útgjöldum til næstu ára vegna þeirra skuldbindinga sem
annars hefðu fylgt kaupunum en félagið hefur samið við Boeing um að fresta afhendingum á næstu þotum
um að minnsta kosti tvö ár og nær félagið því að aðlaga sig betur að breyttu umhverfi í flugiðnaðinum.
Á þeim tíma þegar Boeing 737 MAX þoturnar voru kyrrsettar í mars í fyrra var félagið komið með fimmtán MAX-þotur
og hafði TUI átt að fá átta þotur til viðbótar árið 2019.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.