flugfréttir

Banna kínverskum flugfélögum að fljúga til Bandaríkjanna

- Bandaríkin svara kínverskum flugmálayfirvöldum í sömu mynt

3. júní 2020

|

Frétt skrifuð kl. 19:35

Ef Bandaríkin standa föst á ákvörðun sinni þá fá kínversk flugfélög ekki að fljúga til Bandaríkjanna eftir 16. júní næstkomandi

Bandarísk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau ætli að banna kínverskum flugfélögum að fljúga til Bandaríkjanna á þeim grundvelli að ekkert bandarískt flugfélag fær að fljúga til Kína í dag og hefur bandaríska samgönguráðuneytið því ákveðið að svara í sömu mynt.

Kínversk flugmálayfirvöld tilkynntu að hvert erlent flugfélag fengi að fljúga aðeins eitt vikulegt flug á hvern áfangastað í Kína með þeim skilyrðum að sætanýtingin væri að minnsta kosti 75% og fengi flugfélag aðeins að fljúga ef félagið hafði haldið uppi reglubundnu flugi til Kína eftir 12. mars sl.

Bæði Delta Air Lines og United Airlines höfðu hætt flugi til Kína fyrir 12. mars vegna kórónaveirufaraldursins og fá bandarísku flugfélögin tvö því ekki leyfi til að fljúga til Kína í augnablikinu þar sem þau uppfylla ekki takmarkanir kínverskra flugmálayfirvalda.

Þar af leiðandi hefur samgönguráðuneyti Bandaríkjanna ákveðið að banna öllum flugfélögum í Kína að fljúga til Bandaríkjanna frá og með 16. júní næstkomandi.

Delta Air Lines hafði áætlanir um að hefja aftur flug frá Detroit og Seattle til Shanghai á næstunni en til stóð að fljúga til beggja áfangastaðanna með millilendingu í Seoul í Suður-Kóreu.

Meðal þeirra kínversku flugfélaga sem fyrirhugað bann mun hafa áhrif á eru Air China, China Eastern Airlines, China Southern Airlines auk fleiri flugfélaga.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga