flugfréttir
Aflýsa öllu flugi viku eftir að flug hófst að nýju
- Farþegar voru ekki að framfylgja nýjum reglum vegna heimsfaraldursins
Boeing 737 þotur Lion Air
Indónesíska flugfélagið Lion Air hefur ákveðið að hætta öllu flugi aftur aðeins viku eftir að félagið var byrjað að fljúga á ný eftir kórónaveirufaraldurinn.
Ástæðan er sögð vera þar sem í ljós hafa komið miklir annmarkar meðal farþega er kemur að því að framfylgja
reglugerðum og varúðarráðstöfunum á vegum indónesísku ríkisstjórnarinnar vegna COVID-19
faraldursins.
Lion Air byrjaði að fljúga á ný þann 1. júní síðastliðinn en fljótt fór að bera á því að margir farþegar
voru ekki að uppfylla og framfylgja nýjum reglugerðum sem heilbrigðisyfirvöld í landinu kynntu.
Margir farþegar
hafa ekki fyllt út eyðublöð með réttum hætti eða voru ekki með tilskilin göng sem farið er fram á að
farmvísað er og hefur Lion Air því ákveðið að bíða með allt flug og verður öllu millilandaflugi og
innanlandsflugi aflýst.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.