flugfréttir
Fara mögulega í mál við flugfélög sem hætta við pantanir
- Airbus til allra vilja gerðir til að leysa vandamál vegna COVID-19
Nýjar farþegaþotur við verksmiðjur Airbus í Toulouse í Frakklandi
Airbus hefur tilkynnt að framleiðandinn muni beita hörku og hefja dómsmál á hendur þeim flugfélögum sem ætla að sniðganga þá samninga sem gerðir hafa verið vegna pantana í nýjar þotur vegna COVID-19 heimsfaraldursins.
Airbus segir að þetta sé samt síðasta úrræðið sem farið verður og verður því beitt
sérstaklega gegn þeim flugfélögum sem ætla ekki að virða þá skilmála sem fylgja
samningum þegar nýjar flugvélar eru pantaðar.
„Við reynum alltaf að leysa svona vandamál með góðu og finna lausnir í stað
þess að þurfa að leita réttar okkar fyrir dómstólum“, segir Guillaume Faury, framkvæmdarstjóri
Airbus, sem tekur fram að ef flugfélög hafa engan vilja til að fara milliveginn og vilja
einfaldlega hætta við pöntunina og ekki virða neina skilmála, þá sé farið með málið fyrir
dómi.
Bæði Qatar Airways og Emirates hafa til að mynda tilkynnt að þau geti ekki uppfyllt kröfur Boeing
og Airbus er kemur að þeim pöntunum sem þau hafa gert en Qatar Airways fer fram á að fresta
afhendingum hjá Airbus fram til ársins 2022 á meðan Emirates er að íhuga að hætta við pantanir
í fimm af þeim átta A380 risaþotum sem félagið á von á.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.