flugfréttir
Piaggio Aerospace fékk tilboð frá 19 áhugasömum aðilum
Piaggio Aerospace er þekktast fyrir hina óvenjulegu Piaggio Avanti P.180 flugvél
Ítalski flugvélaframleiðandinn Piaggio Aerospace hefur tilkynnt að fyrirtækinu hafi borist tilboð frá nítján áhugasömum aðilum sem eru tilbúnir að skoða möguleika á að kaupa flugvélaverksmiðjurnar.
Frestur til að skila inn erindi með yfirlýsingu fyrir áhuga á yfirtöku rann út þann 29. maí sl. en Piaggio
Aerospace hefur reynt að leita að nýjum eigendum í meira en ár.
Fram kemur að þeir aðilar sem hafa sýnt áhuga á að kaupa og taka yfir rekstur verksmiðjanna koma
frá Norður-Ameríku, Evrópu og Asíu en næstu skref verður að fara yfir hæfni þeirra aðila sem koma
sterklegast til greina og nýr eigandi verður valinn í kjölfarið og verður þá gengið frá kaupunum á verksmiðjunum.
Piaggio Aerospace er þekktast fyrir hina óvenjulegu Piaggio Avanti P.180 flugvél sem kom á markað árið 1986 en framleiðandinn gekkst undir gjaldþrotameðferð í fyrra.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.