flugfréttir
Emirates segir upp 600 flugmönnum
Frá flugvellinum í Dubai
Emirates hefur sagt upp um 600 flugmönnum en samkvæmt fréttum voru flestir þeirra flugmenn á Airbus A380 risaþotunni.
Talið er að þetta endurspegli möguleg áform Emirates um að skera niður
þann fjölda risaþotna sem félagið hefur í flota sínum þrátt fyrir að félagið hafi
nýlega lýst því yfir að ekki standi til að fækka risaþotunum vegna COVID-19
heimsfaraldursins.
Með þessari uppsögn er heldarfjöldi þeirra flugmanna sem Emirates hefur sagt
upp komin upp í 792 flugmenn.
Talsmaður Emirates segir að þrátt fyrir að félagið sé smátt og smátt að hefja
farþegaflug að nýju eftir heimsfaraldurinn þá séu þetta mjög krefjandi tímar og
eftir að hafa skoðað alla aðra möguleika þá hafi félagið komist að því að
óhjákvæmilegt hafi verið að komast hjá uppsögnum.
Fram kemur að Emirates sé mögulega að íhuga að segja upp þriðjungi alls
starfsfólks en í dag starfa 70.000 manns hjá Emirates.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.