flugfréttir

Tilraunaflug eftir breytingar á 737 MAX gæti hafist í júní

- FAA mun gefa út vottun um leið og búið er að uppfylla öll skilyrði

12. júní 2020

|

Frétt skrifuð kl. 12:00

Boeing 737 MAX þotur við afhendingarmiðstöð Boeing

Boeing vonast til þess að geta hafið flugprófanir að nýju með Boeing 737 MAX þotunni fyrir lok þessa mánaðar og væri um að ræða fyrsta tilraunarflugið sem væri jafnframt skrefið í átt að flughæfnisvottun vélanna.

Alls eru liðnir 15 mánuðir frá því að Boeing 737 MAX þoturnar voru kyrrsettar um allan heim en viðamiklar breytingar og uppfærslur hafa farið fram á stjórnkerfum og hugbúnaði í vélinni en á meðan hafa einnig aðrir annmarkar komið fram sem Boeing hefur unnið að því að lagfæra.

Boeing hefur ekki gefið út neinar yfirlýsingar en samkvæmt heimildum frá tveimur aðilum innan Boeing, sem vilja ekki koma fram undir nafni, þá stefnir Boeing á að geta hafið sérstakt vottunarflug í lok júní.

Staðan í dag með Boeing 737 MAX er sú að framleiðandinn hefur fengið lista með fyrirmælum frá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) með öllum þeim atriðum sem þarf að lagfæra áður en vélin fær að fljúga á ný.

Boeing er byrjað að gera ráð fyrir þeim breytingum er kemur að framleiðslu á nýjum Boeing 737 MAX þotum sem eru nú í samsetningu en þá þarf að gera breytingar á þeim flugvélar sem hafa þegar verið smíðaðar auk þeirra véla sem búið er að afhenda.

FAA sagði í viðtali við Reuters sl. miðvikudag að Boeing 737 MAX fengi að fljúga á ný og hefja aftur farþegaflug um leið og stofnunin verður ánægð með árangurinn og framleiðandinn búinn að uppfylla öll þau skilyrði sem farið er fram á.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga