flugfréttir
Armenía stefnir á að stofna nýtt ríkisflugfélag
- Eru enn á svörtum lista í Evrópu
Frá Zvartnots-flugvellinum í Yerevan, höfuðborg Armeníu
Ríkisstjórnin í Armeníu stefnir á að stofna nýtt ríkisflugfélag til þess að efla flugsamgöngur til og frá landinu og einnig til þess að þurfa ekki að reiða sig eins mikið á þau erlendu flugfélög sem fljúga til landsins.
Suren Papikyan, landstjórnar- og innviðaráðherra Armeníu, sagði á dögunum að hann ætlaði að gera allt sem í hans valdi
stendur til þess að landið fái sitt eigið flugfélag í náinni framtíð en í dag eru rússnesk flugfélög með stærstu markaðshlutdeildina á flugvellinum í höfuðborginni, Yerevan.
Erfiðlega hefur gengið fyrir stjórnvöld í Armeníu að fóta sig á flugmarkaðnum í Evrópu eftir
að flugöryggisstofnun Evrópu (EASA) setti öll armensk flugfélög á svartan lista þar sem talið
er að fæst þeirra nái að uppfylla lágmarkskröfur er kemur að alþjóðlegu flugöryggi.
Armenía hefur ekki haft neitt ríkisflugfélag frá því að flugfélagið Armenian Airlines varð gjaldþrota
árið 2003 og seinasta einkarekna flugfélag landsins til að sinna millilandaflugi, Armavia, hætti flugrekstri árið 2013.
Meða annarra flugfélag sem skráð eru í Armeníu eru Armenia Aircompany, Armenia Airways, Atlantis
European Airways og Atlantis Armenian Airlines.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.