flugfréttir
EasyJet stefnir á 500 flugferðir á dag í júlí
Flugvélar easyJet á Gatwick-flugvellinum í London
EasyJet hefur tilkynnt um aukin umsvif í farþegaflugi frá og með næstu mánaðarmótum en þann 1. júlí stefnir félagið á að fljúga yfir 500 flugferðir á dag.
Þar af mun easyJet fljúga yfir 900 flugferðir á viku til og
frá Bretlandi og mun félagið fljúga frá London Luton, London Stansted, Manchester og frá Aberdeen.
Meðal annars mun félagið fljúga millilandaflug frá London Gatwick, London Luton, Manchester, Newcastle,
Edinborg og frá Belfast til sólarlanda auk þess sem félagið mun fljúga til Parísar, Mílanó og til Barcelona.
Meðal sólaráfangastaða ætlar easyJet að fljúga til Kanaríeyja, Grikklands, Króatíu og til Portúgals og þá
verður einnig flogið frá starfsstöðvum félagsins í Hollandi, Þýskalandi, Frakklandi, Sviss, Ítalíu, Spáni
og í Portúgal.
EasyJet stefnir á að fljúga í júlí um 50% af öllum þeim 1.022 flugleiðum sem félagið flaug fyrir COVID-19
heimsfaraldurinn og verða umsvifin aukin upp í 75% af leiðunum í ágúst.
EasyJet hefur haldið flugflotanum við í því ástandi að tiltölulega fljótt verður að koma vélunum í loftið
þrátt fyrir að þær hafa verið í geymslu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.