flugfréttir
Flugprófanir fyrir vottun á 737 MAX hefjast á morgun
Boeing 737 MAX tilraunarþota Boeing
Orðrómur er uppi um að flugprófanir með Boeing 737 MAX séu að hefjast á morgun en haft er eftir heimildarmönnum sem kunnugir eru málum að Boeing muni ásamt bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) hefja prófanir á mánudag.
Um þriggja daga flugprófanir er að ræða sem er liður í endurútgáfu á flughæfnisvottun fyrir Boeing 737
MAX sem hefur verið kyrrsett í eitt ár og þrjá mánuði.
Tilraunarflugvél af gerðinni Boeing 737 MAX 7 verður notuð í flugprófanirnar og á vélin að fara í loftið
frá Boeing Field á morgun.
Fram kemur að meðal annars verða gerðar tilraunir með skarpar beygjur ásamt fleiri æfingum og verður vélinni
bæði flogið yfir Washington-fylki og meðfram strönd Kyrrahafsins.
Þá munu tilraunaflugmenn gera prófanir með ofris þar sem nýju uppfærslurnar á MCAS-kerfinu
svokallaða verða prófaðar en talið er að það kerfi hafi spilað stór hlutverk í flugslysinum tveimur
hjá Lion Air og Ethiopian Airlines sem varð til þess að Boeing 737 MAX urðu kyrrsettar um allan heim
í mars árið 2019.
Fram kemur að mögulega gæti Boeing 737 MAX verið komin með flughæfnisvottun á ný í september
Hingað til hafa farið fram hundruðir klukkustundir af prófunum á Boeing 737 MAX í flughermi í Renton auk
prófana með Boeing 737 MAX 7 tilraunarþotu.
Starfsmenn frá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) verða um borð í tilraunarfluginu á morgun
og verður svo farið ítarlega yfir niðurstöður úr prófununum ásamt greiningu á gögnum til að meta hæfni
vélanna sem gæti orðið til þess að þær fá að fljúga á ný á næstunni.
Í framhaldi af prófunum þá þarf FAA að samþykkja nýjar reglugerðir og verklag er varðar þjálfun flugmanna
á Boeing 737 MAX en samkvæmt þeim sem þekkja til þá er möguleiki að MAX-vélarnar gætu fengið
flughæfnisvottun í september og mögulega hafið áætlunarflug að nýju með farþega fyrir lok ársins.
Flugmálayfirvöld í Kanada og í Evrópu hafa lýst því yfir að þau ætli að framkvæma sína eigin úttekt og prófanir
eftir að bandarísk flugmálayfirvöld hafa lokið sínum og kemur fram að þær prófanir gætu orðið enn
kröfuharðari og ítarlegri en prófanir Boeing og FAA.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.