flugfréttir
Malasía bannar pakistönskum flugmönnum að fljúga í landinu
Malasísk flugmálayfirvöld telja að rétt innan við 20 flugmenn séu að fljúga fyrir malasísk flugfélög í landinu sem hafa pakistanskt flugmannsskírteini.
Flugmálayfirvöld í Malasíu hafa bannað pakistönskum flugmönnum að fljúga meira fyrir malasísk flugfélög tímabundið og hafa þeir flugmenn, sem hafa flogið fyrir flugfélög í landinu, verið vikið úr starfi um tíma.
Þetta var ákveðið eftir að í ljós kom að fjölmargir flugmenn í Pakistan hafa verið að fljúga án leyfis og
verið með falsað flugmannsskírteini en upp komst um það í kjölfar flugslyss er Airbus A320 þota
frá Pakistan International Airlines (PIA) brotlenti í aðflugi að flugvellinum í Karachi á dögunum.
Malasísk flugmálayfirvöld telja að rétt innan við 20 flugmenn séu að fljúga fyrir malasísk flugfélög í landinu
sem hafa pakistanskt flugmannsskírteini.
Um 860 atvinnuflugmenn eru í Pakistan en 107 af þeim eru að fljúga fyrir erlend flugfélög og stór hluti þeirra
fyrir flugfélög í öðrum Asíulöndum.
Nýlega tilkynntu evrópsk flugmálayfirvöld (EASA) að ákveðið hefði verið að banna pakistönskum flugfélögum
að fljúga til Evrópu og þá hafa bresk flugmálayfirvöld (CAA) einnig fylgt í kjölfarið.
Malasíska flugfélagið Malaysian Airlines hefur sérstaklega tekið fram að félagið hafi enga
pakistanska flugmenn á sínum snærum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.