flugfréttir

Vonast til þess að fá fyrstu 737 MAX þotuna í nóvember

3. júlí 2020

|

Frétt skrifuð kl. 08:40

Síðastliðinn miðvikudag byrjaði Ryanair að fljúga aftur eftir 14 vikna rekstarstöðvun vegna COVID-19 heimsfaraldursins

Ryanair vonast til þess að geta tekið á móti fyrstu Boeing 737 MAX þotunni í nóvember í haust en félagið gerir ráð fyrir að það gæti orðið að veruleika þar sem að flugprófunum er lokið vestanhafs með 737 MAX þotuna.

„Þar sem að það styttist í að MAX-vélarnar fái aftur flughæfnisvottun í Norður-Ameríku þá vonumst við til þess að fá fyrstu vélarnar afhentar til okkar í nóvember eða þeim megin við jólin“, segir Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair.

Ef allt gengur upp þá vonast O´Leary til þess að Ryanair verði komið með 30 til 40 Boeing 737 MAX þotur fyrir sumarið 2021.

Ryanair byrjaði þann 1. júlí sl. að fljúga áætlunarflug á ný og hefur félagið sl. tvo sólarhringa flogið 40% af þeim flugferðum sem félagið ætlaði sér að fljúga í júlí fyrir tíma COVID-19 heimsfaraldursins með allt að 1.000 flugferðum á dag.

O´Leary hefur lýst því yfir að Boeing 737 MAX sé frábær flugvél og hefur hann fulla trú á að hún eigi eftir að standa sig og tekur hann fram að MAX-vélarnar verði aðalstoðin í áframhaldandi umsvifum félagsins í flugi innan Evrópu á næstu árum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga