flugfréttir
Embraer afhendir síðasta eintakið af ERJ-þotunni
Síðasta ERJ-þotan var afhent til Air Hamburg þann 19. júní sl.
Brasilíski flugvélaframleiðandinn Embraer hefur afhent síðasta eintakið af ERJ-þotunni en þessar þotur hafa verið eina vinsælustu farþegaþotur í sínum stærðarflokki sem notaðar hafa verið á stuttum flugleiðum.
Það var þýska leiguflugsfyrirtækið Air Hamburg sem tók við seinasta eintakinu
sem er af gerðinni Embraer Legacy 650E.
ERJ stendur fyrir Embraer Regional Jet en fyrsta þotan, ERJ 135, flaug sitt fyrsta
flug árið 1995 en í kjölfar komu tegundirnar ERJ 140, ERJ 145, Legacy 600 og
Legacy 650.
ERJ-þotan var einn helsti keppinautur kanadíska flugvélaframleiðandans
Bombardier sem kom með CRJ-þotunnar (Canadair Regional Jet) á markað árið 1992 en fyrsta ERJ-þotan kom á markað sjö árum síðar, árið 1997.
ERJ-þotan var framleidd í flestum eintökum fyrir
bandarísku flugfélögin ExpressJet, Envoy Air, Piedmont Airlines og
CommutAir sem annast farþegaflug fyrir United Express, AmericanEagle,
auk fleiri flugfélaga vestanhafs.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.