flugfréttir
Fyrsta MC-21 þotan verður afhent í nóvember árið 2021
Flugfélagið Aeroflot verður fyrsta flugfélagið sem fær MC-21 þotuna afhenta
Rússneski flugvélaframleiðandinn Irkut áætlar að afhenda fyrsta eintakið af MC-21 farþegaþotunni í nóvember á næsta ári.
Fjöldaframleiðsla á þotunni er við það að hefjast í Rússlandi en MC-21 þotunni
er ætlað að etja kappi við þotur á borð við Airbus A320neo og Boeing 737 MAX
en enn sem komið er eru flestir viðskiptavinirnir, sem hafa pantað þotuna, rússneskir.
Alls hafa 15 viðskiptavinir lagt inn pöntun í samtals 175 eintök af þotunni
en næstum því allar pantanirnar hafa verið gerðar í stærri útgáfuna, MC-21-300, og
þá hafa fjögur flugfélög gert samkomulag um pöntun í að minnsta kosti 35 þotur
til viðbótar.
Unnið er að því að fá flughæfnisvottun fyrir MC-21 þoturnar í Rússlandi árið 2021
en talið er að flugmálayfirvöld í Evrópu (EASA) muni sennilega ekki gefa út
flughæfnisvottun fyrr en árið 2022.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.