flugfréttir
Spennandi tímar í fluginu framundan eftir COVID-19
- Yfirmaður FAA telur að flugið muni ná sér að fullu á 2 til 4 árum
Steve Dickson, yfirmaður bandarískra flugmálayfirvalda (FAA)
Stephen Dickson, formaður bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) ávarpaði nemendur við Embry Riddle háskólann á Netinu í vefútsendingu á dögunum þar sem hann meðal annars hvatti flugnema, og þá nemendur sem stunda nám við flugtengdar greinar, að gefast ekki upp vegna COVID-19 heimsfaraldursins.
Dickson sagði meðal annars að það væru önnur útgáfa af „gullnu árum flugsins“ handan við hornið og mikið af
spennandi tækifærum framundan eftir að flugiðnaðurinn hefur náð sér á strik eftir heimsfaraldurinn.
Dickson sagði meðal annars að næstu 5 ár myndu verða mjög viðburðarrík í fluginu og þá sérstaklega er kemur
að nýrri tækni á borð við rafknúnar flugvélar og fleiri nýjungar sem verið er að prófa sem hluta af flugsamgöngum.
Telur Dickson að sú þróun gæti verið sú viðamesta síðan að þotuhreyfillinn kom á markað og flugvélar með jafnþrýstibúnað og væru
þeir tímar framundan þrátt fyrir kórónaveirufaraldurinn.
Skjáskot af vefútsendingunni (webinar) á Youtube-síðu Embry Riddle
háskólans
„Ég elska að fljúga. Að fljúga er ekki vinna heldur ástríða og það er ekkert betra en að vera innan um
flugvélar“, sagði Stephen Dickson sem hóf sinn flugferil hjá bandaríska flughernum áður en hann byrjaði
að fljúga sem atvinnuflugmaður hjá Delta Air Lines en árið 2018 varð hann gerðir að 18. yfirmanni bandarískra flugmálayfirvalda.
Aðspurður um hvað hann haldi að það þurfti til svo að flugiðnaðurinn verði aftur sá sami og hann var og hvernig
hann telur að það bataferli muni líta út svarar Dickson að hann líti á flugumferðartölur á hverjum degi og tekur
hann fram að tölur sem snúa að almannaflugi og einkaflugi séu að taka hratt við sér en misjafnt er hversu
hraður batinn verður eftir mörkuðum.
Þá telur hann að flug í viðskiptaerindum á Business Class farrýmum eigi eftir að taka seint við sér sem kemur
sér illa fyrir flugfélög sem fljúga langflug þar sem tekjur af slíkum sætum telur allt að 70 prósentum af tekjum
flugfélaga í farmiðasölu á meðan almennt flug meðal farþega sem ferðast í öðrum erindagjörðum eigi eftir að
ná sér fyrr á strik.
Dickson sagðist ekki hafa átt von á því að fljótlega eftir að hann tók við embætti yfirmanns FAA að hann þyrfti
að undirbúa sig fyrir tímabil sem olli því að flugumferð dróst saman um 95% og varð til þess að aðeins
var flogið millilandaflug til og frá ellefu flugvöllum í Bandaríkjunum.
Flugvélar JetBlue í geymslu í Arizona vegna heimsfaraldursins
Varðandi þau áhrif sem heimsfaraldurinn hefur haft á flugið þá telur Dickson að eftirspurnin muni koma aftur
til baka en að ná sama farþegafjölda og var fyrir tíma COVID-19 gæti tekið 2 til 4 ár og myndi eftirspurnin
koma fyrst meðal farþega sem fljúga til að fara í frí, til sólarlanda eða í persónulegum erindagjörðum.
Dickson segir að þeir sem eru að taka sín fyrstu skref í fluginu ættu að vera viðbúin því að einhver
kynslóðaskipti muni eiga sér stað þar sem einhver hópur af starfsfólk mun ekki fá aftur starf sitt
iðnaðinum sem skapar tækifæri fyrir aðra.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.