flugfréttir
Rúmenía samþykkir greiðslustöðvun fyrir Blue Air
Boeing 737-800 þota Blue Air
Rúmenska lágfargjaldafélagið Blue Air hefur farið fram á gjaldþrotavernd og greiðslustöðvun og hefur félagið fengið leyfi til þess að fresta greiðslum af lánum og greiðslum af skuldum til kröfuhafa í að minnsta kosti 18 mánuði.
Með þessu fær félagið eitt og hálft ár til þess að endurskipuleggja rekstur félagsins og ná að rétta afkomuna við en
fram kemur að kröfurhafar munu frekar hagnast á því að samþykkja greiðslustöðvun þar sem þeir myndu ekki fá
neinar greiðslur ef flugfélagið færi í þrot.
Blue Air, líkt og mörg önnur evrópsk flugfélög, hefur orðið illa fyrir barðinu á kórónaveirufaraldrinum og sagði félagið
upp 90% af starfsfólki sínu í apríl í vor en í júní fór eftirspurn eftir flugi að aukast eilítið og frá og með 1. júlí hefur félagið
byrjað að fljúga áætlunarflug að nýju með eðlilegum hætti en þó í minna mæli.
Félagið hefur hafið flug til 29 áfangastaða og áætlar Blue Air að félagið geti flogið til 50 áfangastaða um miðjan júlí þegar afléttingu
takmarkanna vegna COVID-19 verður aflétt en félagið flaug til yfir 100 áfangastaða fyrir heimsfaraldurinn.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.