flugfréttir
El Al ríkisvætt þangað til að nýir fjárfestar finnast
Boeing 787-9 þota El Al Israel Airlines
Ríkisstjórnin í Ísrael ætlar sér að taka við rekstri flugfélagsins El Al Israel Airlines og verður flugfélagið ríkisvætt þangað til að nýir fjárfestar finnast.
Stjórn flugfélagsins samþykkti sl. sunnudag tillögur fjármálaráðuneytis Ísraels sem lagði
til að ríkið myndi taka við keflinu til að tryggja reksturinn á meðan kórónaveirufaraldurinn
er í gangi.
Ríkið mun veita félaginu lán upp á 35 milljarða króna og einnig setja 21 milljarð króna
í reksturinn og eignast ríkið því 61% hlut í El Al Israel Airlines.
Flugfélagið ísraelska var nýbyrjað að hefja áætlunarflug að nýju þegar öllu flugi var aflýst
sl. mánaðarmót þar sem að flugmenn félagsins neituðu að fljúga meira eftir að viðræður fóru út um þúfur við starfsmannafélög flugmanna.
Flugfélagið krafðist þess að allt flug yrði stöðvað og fór félagið fram á að allar flugvélar
myndu fljúga heim til Tel Aviv þrátt fyrir að þær væru staðsettar á flugvöllum í miðri ferð
með viðdvöl á nokkrum áfangastöðum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.