flugfréttir

Kjarasamningur við flugfreyjur felldur í atkvæðagreiðslu

- Enn sá besti samningur sem stóð flugfreyjum og flugþjónum til boða

8. júlí 2020

|

Frétt skrifuð kl. 13:40

Kjarasamningurinn var undirritaður þann 25. júní síðastliðinn

Flugfreyjur og flugþjónar Icelandair, sem eru félagsmenn í Flugfreyjufélagi Íslands, hafa fellt þann kjarasamning sem skrifað var undir í lok júní en atkvæðagreiðsla tók við í kjölfar samningsins og kom í ljós í dag að meirihluti flugfreyja kaus gegn samningnum.

Fram kemur að aðeins hafi 26% kosið með samningnum á meðan 72 prósent greiddu gegn honum en um 85 prósent félagsmanna tóku þátt í kjörinu.

Fram kemur að markmið samningsins hafi verið að tryggja samkeppnishæfni Icelandair til langstíma og tryggja starfsumhverfi fyrir flugfreyjur en samningur hafa þegar náðst við flugmenn, sem eru félagsmenn í Félagi íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA), og þá hefur einnig verið samið við flugvirkja, sem eru félagsmenn í Flugvirkjafélagi Íslands.

Séu þessir samningarnir því meginforsendan fyrir endurskipulagningu í rekstri Icelandair og er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóri Icelandair Group, að um mikil vonbrigði að ræða þar sem þessi samningur var einn sá besti sem var í boði og hefði hann tryggt störf flugfreyja og flugþjóna til langstíma.

Nauðsynlegt verður því að meta stöðuna upp á nýtt í kjölfar niðurstöðunnar úr atkvæðagreiðslunni og hafa hraðar hendur til að finna lausn á kjaradeilunni. Fram kemur að viðræður hefjast að nýju við Flugfreyjufélag Íslands eins fljótt og hægt er.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga