flugfréttir
Air Namibía svipt leyfi til þess að fljúga farþegaflug

Flugvélar namibíska flugfélagsins Air Namibia á flugvellinum í borginni Windhoek
Ríkisstjórn Namibíu hefur svipt flugfélaginu Air Namibia leyfi til þess að fljúga áætunarflug og leiguflug með farþega þar sem að félagið hefur ekki náð að afla nægilegs fjármagns til þess að sína fram á að félagið geti haldið rekstrinum áfram.
Samgönguráðuneyti Namibíu ákvað því að svipta félaginu leyfi til þess að fljúga áætlunarflug með
farþega vegna óvissu með fjárhagsstöðu félagins sem hefði annars geta bitnað á flugöryggi og
þjónustu við farþega.
„Flugfélag þarf að uppfylla lágmarksskilyrði er snýr að fjárhagsstöðu til þess að tryggja öryggi og áreiðanlega
þjónustu og eftir að hafa tekið alla þætti málsins með í reikninginn þá var það niðurstaðan að svipta
félaginu leyfi til þess að fljúga áætlunarflug, leiguflug og sérstakar flugferðir á borð við björgunarflug“, segir
í tilkynningu frá stjórnvöldum í landinu.
Air Namibía hefur frest fram til 22. júlí til þess að koma með gögn sem sanna að félagið sé
með nægt fjármagn til þess að geta haldið rekstrinum áfram og uppfylla kröfur sem snúa að
flugþjónustusáttmála.
Air Namibía þarf að minnsta kosti 65 milljarða króna til þess að geta haldið áfram rekstri en félagið
hefur aðeins fengið um 1/10 af þeirri upphæð sem var opinber aðstoð frá stjórnvöldum í Namibíu.


27. október 2020
|
Icelandair áætlar að félagið muni fá þrjár Boeing 737 MAX þotur afhentar eftir áramót en í nýrri afkomuskýrslu félagsins segir að MAX-þoturnar þrjár verði afhentar á öðrum ársfjórðungi ársins 2021.

27. desember 2020
|
Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair, segir að kórónaveirufaraldurinn eigi eftir að skapa mikil tækifæri fyrir sum flugfélög til þess að ná að vaxa enn frekar til þess að sinna mörkuðum sem ha

1. desember 2020
|
Fyrirtækið sem sér um útgáfu á flugleiðsöguupplýsingum í Rússlandi hefur varað rússnesk flugfélög við því að skortur sé á réttum leiðsögugögnum fyrir 49 flugvelli í landinu.

22. janúar 2021
|
Kanadíska flugfélagið WestJet flaug í gær fyrsta áætlunarflugið í Kanada með Boeing 737 MAX eftir 22 mánaða kyrrsetningu og er WestJet þá einnig fimmta flugfélagið í heiminum til að hefja áætlunarflu

22. janúar 2021
|
Breska flugfélagið Jet2.com og ferðaskrifstofan Jet2CityBreaks ætla að bjóða upp á flug og borgarferðir frá Manchester á Englandi til Íslands sumarið 2022 en flogið verður á milli Keflavíkurflugvall

21. janúar 2021
|
Búið er að fresta flugsýningunni AERO sem fram átti að fara í apríl í þýsku borginni Friederickshafen.

21. janúar 2021
|
Lítil eins hreyfils flugvél neyddist til þess að lenda á hraðbraut í Texas í Bandaríkjunum í gær eftir að upp kom bilun í mótor.

21. janúar 2021
|
Hollenska flugfélagið KLM Royal Dutch Airlines ætlar að fella niður allt langflug tímabundið til annarra heimsálfa til og frá Amsterdam frá og með morgundeginum.

21. janúar 2021
|
Norska flugfélagið Norwegian hefur lýst því yfir að ríkisstjórn Noregs ætli sér að styðja við bakið á flugfélaginu með fyrirhugaðri fjárhagsaðstoð.

20. janúar 2021
|
International Airlines Group (IAG), móðurfélag British Airways, mun kaupa spænska flugfélagið Air Europa fyrir helmingi lægra verð en upphaflega stóð til að greiða fyrir félagið þegar tilkynnt var u

19. janúar 2021
|
Breska flugfélagið Titan Airways verður annað flugfélagið til þess að taka í notkun fraktþotu af gerðinni Airbus A321 sem hefur verið breytt úr farþegaflugvél til þess að flytja eingöngu vörur.