flugfréttir
LEVEL France hættir starfsemi
Airbus A330 breiðþota LEVEL France
Flugfélagasamsteypan IAG (International Airlines Group) tilkynnti í gær að dótturfélagið LEVEL France myndi hætta starfsemi sinni.
Aðeins er um einn mánuður liðinn frá því að tilkynnt var um endalok
flugfélagsins LEVEL Europe en ástæðan í báðum tilvikunum er vegna
þeirra áhrifa sem kórónaveirufaraldurinn hefur haft á rekstur félaganna.
LEVEL Europe hafði bækistöðvar í Vín í Austurríki á meðan
LEVEL France var með höfuðstöðvar á Orly-flugvellinum í París.
IAG stofnaði LEVEL flugfélagið árið 2017 og hafði evrópski hluti félagsins verið
starfræktur í tvö ár, eða frá árinu 2018.
LEVEL France annaðist áætlunarflug með þremur Airbus A330-200 breiðþotum frá París til New York, Montréal og
þess sem félagið flaug til áfangastaða í Karíbahafinu.
LEVEL France hét áður OpenSkies og var félagið dótturflugfélag British Airways
áður en nafni þess var breytt með tilkomu LEVEL.
Eina flugfélagið undir nýja merkinu sem enn er starfrækt er
LEVEL Barcelona en það félag hefur sl. misseri sinnt áætlunarflugi
til Buenos Aires, San Francisco og til Boston.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.