flugfréttir
Yfir 80 starfsmönnum hjá Ryanair í Belgíu sagt upp
Boeing 737-800 þota Ryanair í lendingu á flugvellinum í Brussel í Belgíu
Ryanair hefur ákveðið að segja upp 40 flugmönnum og fjörutíu flugfreyjum og flugþjónum í Belgíu.
Ryanair hafði varað við því fyrir nokkrum vikum síðan að félagið myndi
leggja niður störf 25% af öllu starfsfólki sínu í Belgíu ef ekki tækist að semja um nýja kjarasamninga og hefur lágfargjaldafélagið írska
nú ákveðið að láta verða af þeim aðgerðum.
Flugfélagið hefur orðið illa úti vegna kórónaveirufaraldursins og hafði Ryanair
ítrekað beðið starfsfólk sitt í Belgíu að samþykkja lægri kjör ef það vildi
halda starfinu en allar samningaviðræður gengu ekki upp.
Ryanair hefur hinsvegar náð að semja um lægri kjör við starfsfólk sitt
á Írlandi og Bretlandi og mun félagið halda áfram að semja við starfsfólk
sitt í öðrum löndum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.