flugfréttir
Emirates gerir ekki ráð fyrir Boeing 777X fyrr en árið 2022
- Efast um að arftaki Boeing 777 komi á markað á næsta ári
Boeing 777X tilraunarþota Boeing
Emirates gerir ekki ráð fyrir að arftaki Boeing 777 þotunnar, Boeing 777X, komi á markað árið 2021 eins og áætlun Boeing gerir ráð fyrir.
Emirates átti að fá fyrsta eintakið af Boeing 777X þotunni afhent á næsta ári en flugfélagið er ekki vongott
um að það gangi eftir og segist efast um að þotan komi á markað fyrr en árið 2022.
Adel Al Redha, rekstarstjóri Emirates, segir að kórónaveirufaraldurinn spili þar mest inn í auk
þess sem vottunarferlið fyrir Boeing 777X hefur dregist á langinn.
Emirates á von á 115 þotum af gerðinni Boeing 777X og á fyrsta eintakið að fara til Emirates, fyrst allra
flugfélaga, en ekkert annað flugfélag hefur pantað eins mörg eintök af þessari farþegaþotu sem verður ein stærsta tveggja hreyfla farþegaþota heims.
Emirates segist vera að skoða ýmsa möguleika og þar á meðal að skipta út einhverjum af þessum 115 þotum
fyrir aðra tegund og þá kæmi Boeing 787 helst til greina.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.