flugfréttir
Icelandair og airBaltic í samstarf

Með samstarfinu geta farþegar hjá báðum flugfélögum bókað flug áfram til áfangastaða í leiðarkerfi félaganna beggja
Icelandair og lettneska flugfélagið airBaltic hafa hafið samstarf með undirritun samstarfssamning um sameiginlega útgáfu á farmiðum.
Með samstarfinu geta farþegar hjá báðum flugfélögum bókað flug áfram til áfangastaða í leiðarkerfi félaganna beggja með
einföldum hætti á einni bókun.
Geta farþegar með airBaltic því fengið auðveldara aðgengi að flugi til Íslands og áfram til Norður-Ameríku á meðan Íslendingar geta farið
á einni bókun til Lettlands og þaðan áfram til áfangastaða airBaltic um Austur-Evrópu og Eistrasaltsríkin.
„Okkur er það mikil ánægja að bæta Icelanair við í hóp samstarfsaðila meðal þeirra flugfélaga sem deila
leiðarkerfinu með okkur og hlakkar okkur til samstarfsins með Icelandair og að geta boðið viðskiptavinum okkar upp á fleiri
tækifæri“, segir Martin Gauss, framkvæmdarstjóri airBaltic.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, segir að með þessu geti Íslendingar fengið fleiri valmöguleika
er kemur að því að ferðast um Evrópu og þá sérstaklega um austurhluta álfunnar á meðan farþegar airBaltic geta fengið að upplifa Ísland og ferðast áfram til Norður-Ameríku með Icelandair.


6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.