flugfréttir
Fly Armenia nýtt flugfélag í Armeníu
Nýja flugfélagið mun hefja starfsemi sína með Boeing 737 þotu, Boeing 747 og Airbus A330 fraktflugvél
Á meðan mörg flugfélög eru að berjast við að halda velli og forða sér frá gjaldþroti þá er verið að stofna nýtt flugfélag í Ameníu sem fer að líta dagsins ljóss á næstunni.
Flugfélagið nýja nefnist Fly Armenia og stefnir félagið á að hefja farþegaflug og fraktflug en félagið hefur
notið aðstoðar frá fyrrverandi stjórnarmeðlimum Lufthansa.
Armenía hefur haft tvö flugfélög í gegnum tíðana sem bæði urðu gjaldþrota fyrir nokkrum árum, Taron
Avia sem hætti rekstri árið 2017 og Armavia sem varð gjaldþrota árið 2013.
Samkvæmt fréttum í fjölmiðlum í landinu þá kemur fram að Fly Armenia sé komið
með öll tilskilin leyfi og flugrekstarleyfi frá armenskum flugmálayfirvöldum.
Flugfloti félagsins mun samanstanda af Boeing 737 þotum sem verða notaðar
í áætlunarflug til Evrópu og Miðausturlanda en þá ætlar félagið að fljúga til
Los Angeles, Peking og til Shanghai með Boeing 747 júmbó-þotum auk þess
sem stefnt er á að taka inn Airbus A300 fraktþotu fyrir fraktflug.
Fly Armenia verður ekki lágfargjaldaflugfélag heldur flugfélag sem veitir fulla
þjónustu og verður frí máltíð um borð auk annarrar þjónustu sem lágfargjaldaflugfélög rukka sérstaklega fyrir eða bjóða ekki upp á.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.