flugfréttir

Risatap Delta Air Lines samsvarar 547 milljörðum

- Fóru á mis við yfir 1.500 milljarða króna í tekjur vegna COVID-19

14. júlí 2020

|

Frétt skrifuð kl. 15:17

Flugvélar Delta Air Lines

Bandaríska flugfélagið Delta Air Lines tapaði um 547 milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi ársins og er þetta eitt mesta tap í sögu félagsins sem er tilkomið vegna COVID-19 heimsfaraldursins.

Þrátt fyrir viðamikinn niðurskurð á borð við uppsagnir starfsfólks og fækkun flugvéla og afskrifta auk fjárhagsaðstoðar frá bandaríska ríkinu þá var taprekstur félagsins gríðarlegur frá apríl fram í lok júní.

Tekjur Delta Air Lines dróust saman um 91% á tímabilinu og voru tekur félagsins yfir eittþúsund og fimmhundruð milljörðum krónum lægri en á sama tíma í fyrra þar sem framboð á flugsætum dróst saman um 85 prósent.

„3.9 milljarða dala taprekstur fyrir skatta og yfir 11 milljarða dala samdráttur í tekjum miðað við sama tímabil í fyrra sýnir vel hversu gríðarleg áhrif COVID-19 heimsfaraldurinn er að hafa á viðskiptin hjá okkur“, segir Ed Bastian, framkvæmdarstjóri Delta Air Lines.

Bastian telur að það muni taka um 2 ár fyrir Delta Air Lines að ná sér á strik aftur en Delta er fyrsta bandaríska flugfélagið til að birta afkomu sína eftir kórónaveirufaraldurinn.

Þá hefur það kostað Delta um 350 milljarða króna að taka úr umferð flugvélategundir á borð við McDonnell Douglas MD-90, Boeing 777 og Boeing 737-700 og hluta af Boeing 767 breiðþotunum auk hluta af Airbus A320 vélunum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga