flugfréttir
Fraktflugvél brotlenti í Sómalíu
- Fara að flytja hjálpargögn og matvæli til landsins
Flugvélin varð alelda eftir brotlendinguna og náði slökkvilið ekki að ráða niðurlögum eldsins
Allir komust lífs af í flugslysi í Sómalíu er fraktflugvél af gerðinni de Havilland DHC-8 frá flugfélaginu Blue Bird Aviation brotlenti í lendingu í dag á Belet Uen flugvellinum nálægt borginni Beledweyne í miðhluta landsins.
Flugvélin var að flytja hjálpargögn og matvæli til Sómalíu á vegum Sameinuðu þjóðanna
og fór í loftið frá flugvellinum í Djibouti og voru þrír áhafnarmeðlimir í vélinni sem komust allir frá borði áður en eldurinn kom upp.
Flugvélin gjöreyðilagðist og varð alelda í kjölfarið en orsök slyssins er enn óljós.
Fréttamiðlar greina frá því meðal annars að flugvélin hafi rekist í sandhóla á flugbrautinni sem búið var að grafa upp vegna viðhaldsvinnu á brautinni en þá greina fréttamiðlar
í Kenýa frá því að asni hafi verið á flugbrautinni þegar vélin var að lenda.
Fram kemur að slökkviliðið náði ekki að ráða niðurlögum eldsins vegna skorts á tækjabúnaði til slökkvistarfs.
Fleiri myndir:
Flugvélin var með skráninguna 5Y-VVU og var hún smíðuð árið 2000
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.