flugfréttir

Fyrsta risaþotuflug Emirates með A380 í 4 mánuði

- Fyrstu A380 þoturnar á leið til London og til Parísar

15. júlí 2020

|

Frétt skrifuð kl. 13:26

Airbus A380 risaþota Emirates í flugtaki á flugvellinum í Dubai

Emirates flýgur í dag fyrstu áætlunarflugin með risaþotunni Airbus A380 í fjóra mánuði en risaþotuflugfloti félagsins hefur verið kyrrsettur vegna COVID-19 heimsfaraldursins.

Fyrsta flug félagsins með A380 var flug EK1 frá Dubai til London Heathrow og hóf þotan sig á loft frá Dubai klukkan 04:12 í nótt að íslenskum tíma og þá hóf önnur A380 þota sig á loft klukkan 05:11 í morgun en sú þota er á leið til Charles de Gaulle flugvallarins í París.

Risaþota Emirates sem lendir í París mun fá sérstakar heiðursmóttökur þar sem hún verður fyrsta A380 risaþotan til að lenda í Evrópu eftir að kórónaveirufaraldurinn braust út.

Emirates mun frá og með deginum í dag einnig hefja áætlunarflug að nýju til Aþenu, Barcelona, Genfar, Glasgow, Larnaca, Munchen og til Rómar og þá verður á morgun fyrsta flugið flogið til Malé og Washington og þann 17. júlí hefst aftur flug til Brussell.

Margir höfðu óttast að COVID-19 myndi binda endi á risaþotuflug hjá Emirates en flugfélagið hefur alltaf lýst því yfir að það væri staðráðið í að halda áfram með Airbus A380 eftir heimsfaraldurinn.

A6-EVC á leið frá Dubai til London Heathrow á Flightradar24.com







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga