flugfréttir
FAA lækkar öryggisstuðul fyrir Pakistan niður í 2. flokk
- Pakistönsk flugfélög fá ekki að fljúga til Bandaríkjanna
Frá flugvellinum í Lahore í Pakistan
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa lækkað öryggisstuðul fyrir Pakistan niður í 2. flokk þar sem að flugöryggið í landinu þykir ekki uppfylla lágmarkskröfur Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO).
Bandarísk flugmálayfirvöld vinna eftir alþjóðlegum eftirlitsstaðli í flugöryggi (International Aviation Safety Assessment) þar
sem úttekt er gerð á flugmálum í öllum ríkjum heims þar sem erlend flugfélög sækja um leyfi til þess að fljúga áætlunarflug til Bandaríkjanna auk
flugfélaga sem eru í samvinnu við önnur flugfélög um sameiginlega útgáfu á farmiðum til Bandaríkjanna.
Samkvæmt verkefninu er metið hvort að viðkomandi land uppfyllir kröfur um flugöryggi sem gefin eru út af ICAO
en ef viðkomandi land nær ekki Category 1 staðlinum fá flugfélög frá því landi ekki að fljúga til Bandaríkjanna.
Er það mat FAA að flugöryggi í Pakistan uppfyllir ekki Category 1 en ekki er gefin út nákvæmlega hver ástæðan sé
fyrir því í smáatriðum sem varð til þess að flugöryggi í Pakistan hefur verið lækkað niður í Category 2.
Stutt er síðan
að fréttir bárust af því að í ljós kom að fjöldi atvinnuflugmanna í Pakistan voru með ýmist ógild eða fölsuð
flugskírteini sem uppgötvaðist í kjölfar flugslyss er Airbus A320 farþegaþota frá Pakistan International Airlines (PIA) fórst í aðflugi að borginni Karachi þann 22. maí sl.
Einnig kom í ljós að fjöldi flugmanna í Pakistan höfðu ekki setið sjálfir þau próf sem þeim var ætlað að taka
sem er skilyrði fyrir útgáfu á atvinnuflugmannsskírteinum og höfðu þeir í mörgum tilfellum greitt öðrum aðila fé til þess
að taka prófið fyrir sig undir fölsku nafni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.