flugfréttir
Lufthansa sækir um flugrekstrarleyfi fyrir „Ocean“
Flugvélar Lufthansa
Lufthansa Group vinnur nú að stofnun nýs dótturflugfélags sem fengið hefur vinnuheitið „Ocean“ en nýja flugfélagið mun hefja áætlunarflug árið 2022.
Flugfélagið verður sambærilegt flugfélag og svissneska félagið Edelweiss og mun það einblína á gæðaþjónustu í
skemmti- og sólarlandaflugferðum í langflugi.
Fram kemur að mögulega muni félagið sjá um áætlunarflug til Tampa í Flórída, Anchorage, Orlando og til Las Vegas
en að öðru leyti er ekki búið að gefa upp hverjir áfangastaðir félagsins verða en talið er að félagið muni fljúga
einhverja af þeim áfangastöðum sem Eurowings hefur sinnt hingað til.
Nýja flugfélagið mun byrja með flugflota sem telur ellefu þotur en fjórar verða staðsettar í Frankfurt, þrjár í Munchen og þá
munu þrjár þotur hafa bækistöðvar í Dusseldorf.
Lufthansa vinnur nú að því að fá útgefið flugrekstarleyfi fyrir félagið en ólíklegt er að nafnið „Ocean“ verði endanlegt
nafn flugfélagsins og er að öllum líkindum eingöngu um vinnsluheiti að ræða sem valið er vegna umsóknar á flugrekstarleyfi.
Þá kemur fram að hæpið sé að nýja félagið verði nýtt flugfélag sem muni skarta nýju útliti þar sem allt bendir til þess að
Lufthansa Group sé að hagræða flugrekstarleyfum dótturfélaganna sem eru í dag fjögur talsins sem eru í notkun
fyrir Brussels Airlines, Germanwings, SunExpress Germany og Eurowings.
Neda Jaafari, talsmaður Lufthansa, segir að Ocean verði ekki nýtt merki á markaðnum heldur eingöngu
um að ræða nýtt flugrekstarleyfi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.