flugfréttir

Heildarfjöldi afpantana í 737 MAX nálgast 600 þotur

- Viðskiptavinir hafa hætt við 323 MAX-vélar á þessu ári

16. júlí 2020

|

Frétt skrifuð kl. 12:36

Nýjar Boeing 737 MAX þotur við verksmiðjur Boeing í Renton

Boeing hefur formlega birt tölur yfir heildarfjölda þeirra Boeing 737 MAX þotna sem hafa verið afpantaðar á þessu ári en reglulega hafa birst fréttir af flugfélögum og viðskiptavinum sem hafa ákveðið að hætta við MAX-þoturnar eftir að COVID-19 heimsfaraldurinn hófst í vor.

Það sem af er þessu ári hefur Boeing fengið afbókanir í 323 þotur af gerðinni Boeing 737 MAX en þetta kemur fram í afkomuskýrslu flugvélaframleiðandans sem birt var í vikunni.

Boeing tilkynnti á þriðjudag að viðskiptavinir hefðu hætt við 60 Boeing 737 MAX þotur í síðastliðnum júnímánuði en ástæðuna má bæði rekja til kórónaveirufaraldursins og einnig vegna kyrrsetningu vélanna sem hafa í dag verið kyrrsettar í 16 mánuði.

Boeing hafði fengið pantanir í alls 4.636 eintök af Boeing 737 MAX frá því sala á vélinni hófst árið 2011 en framleiðandinn hafði þegar fengið afpantanir í yfir 200 þotur eftir að vélarnar voru kyrrsettar í mars árið 2019 og nálgast því heildarfjöldi þeirra 737 MAX þotna, sem viðskiptavinir hafa hætt við, því 600 eintök.

Frá framleiðslusalnum í Renton þar sem Boeing 737 MAX þoturnar eru smíðaðar

Hefur því heildarfjöldi þeirra Boeing 737 MAX þotna því lækkað úr 4.636 eintökum niður í tæpar 4 þúsund þotur og gæti sú tala lækkað enn frekar þar sem áhrif vegna COVID-19 heimsfaraldursins á flugiðnaðinn á sennilega eftir að aukast þegar á líður.

Ef Norwegian mun formlega taka þá ákvörðun að hætta við allar þær 97 Boeing 737 MAX þotur sem flugfélagið á eftir að fá afhentar mun heildarfjöldi afpantana í Boeing 737 MAX nálgast 700 þotur.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga