flugfréttir
Emirates og flydubai hársbreidd frá sameiningu
Emirates og flydubai hófu viðamikið samstarf í október árið 2017 en svo gæti farið að flugfélögin tvö eigi eftir að sameinast á næstunni
Svo gæti farið að flugfélögin tvö, Emirates og flydubai, muni sameinast á næstu dögum en þær breytingar sem hafa átt sér stað í flugiðnaðinum í ár auka líkurnar á samruna flugfélaganna tveggja.
Þetta segir Adnan Kazim, rekstarstjóri Emirates, sem segir að Emirates og flydubai séu
hársbreidd frá því að sameinast í eitt flugfélag en bæði flugfélögin eru mjög ólík hvort öðru
þar sem Emirates hefur eingöngu stórar breiðþotur og risaþotur sem fljúga heimshorna á milli
meðan flydubai hefur eingöngu minni farþegaþotur í sínum flugflota.
Vegna minni eftirspurnar eftir flugsætum þá er ekki eins hagkvæmt fyrir Emirates að fljúga
styttri flugleiðir með Boeing 777 þotunum en félagið gæti séð hag sinn í því að fljúga einhverjar
flugleiðir með Boeing 737 þotum flydubai.
Emirates og flydubai hófu viðamikið samstarf í október árið 2017 en heildarfjöldi
áfangastaða flugfélaganna tveggja taldi 210 áfangastaði fyrir COVID-19 heimsfaraldurinn.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.