flugfréttir
Risaþota BA lendir á Heathrow - Þó ekki í farþegaflugi
Airbus A380 risaþotur British Airways hafa ekki flogið áætlunarflug síðan í apríl í vor
British Airways gæti mögulega verið að undirbúa risaþoturnar Airbus A380 fyrir áætlunarflug að nýju eftir þriggja mánaða hlé.
British Airways hefur líkt og mörg önnur flugfélög lagt A380 risaþotunum vegna kórónaveirufaraldursins
og hafa risaþotur félagsins verið geymdar að undanförnu í Chateauroux í Frakklandi síðan í apríl.
Í dag hóf ein risaþota British Airways sig á loft frá Chateauroux og segir talsmaður flugfélagsins
að sú þota væri á leið til Heathrow-flugvallarins í London í ferjuflugi vegna viðhalds.
Í dag eru tvær Airbus A380 þotur í flota British Airways sem eru að gangast undir reglubundið
viðhald en önnur þotan er stödd þessa daganna í Manila á Filippseyjum þar sem hún
gengst umfangsmikla C-skoðun.
Þykir þetta benda til þess að British Airways stefni á að setja Airbus A380 aftur í umferð
ólíkt Air France sem segist ekki ætla að nota þær aftur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.