flugfréttir

Uppsagnir 114 flugmanna hjá Icelandair dregnar til baka

16. júlí 2020

|

Frétt skrifuð kl. 16:01

Í flugstjórnarklefa á „Svörtuborgum“, Boeing 767-300ER breiðþotu Icelandair á Keflavíkurflugvelli

Icelandair stefnir á að draga til baka uppsagnir meðal 114 flugmanna hjá félaginu sem þýðir að 139 flugmenn munu starfa hjá félaginu frá og með næstu mánaðarmótum. Þetta er haft eftir Jóni Þóri Þorvaldssyni, formanni félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA), samkvæmt fréttum Viðskiptablaðsins.

Icelandair sagði upp 421 flugmanni þann 28. apríl í vor vegna þeirra áhrifa sem fylgdu kórónaveirufaraldrinum og lagðist allt áætlunarflug Icelandair nánast af í framhaldinu af því í maí og í fyrri hluta júnímánaðar.

Frá og með 15. júní byrjaði félagið að auka fjölda flugferða á ný og hefja aftur áætlunarflug til valdra áfangastaða í Evrópu og hefur félagð nú flogið í um einn mánuð eftir að landamæri Íslands voru gerð aðgengilegri.

Erfiðlega hefur gengið fyrir flugfélög að setja saman langtímaflugáætlun þar sem markaðir eru mjög misjafnir og óvíst hvenær sum lönd opna aftur fyrir flugsamgöngur vegna heimsfaraldursins.

Jón Þór segir þetta vera góðar fréttir fyrir þá 139 flugmenn sem munu halda áfram að fljúga hjá félaginu en erfiðar fréttir fyrir þá 282 flugmenn sem munu ekki fá að starfið aftur á þessum tímapunkti en þeir munu missa vinnuna frá og með 1. ágúst næstkomandi.

Boeing 757 þota Icelandair á Keflavíkurflugvelli í október í fyrra

Aukning flugferða og eftirspurn eftir farmiðum til og frá landinu ræður að mestu för en ferðalög Íslendinga erlendis og erlendra ferðamanna hingað til lands eru ennþá takmarkaður miðað við sumarvertíðina sem ætti að vera í hæstu hæðum undir eðlilegum kringumstæðum og erfiðlega hefur gengið að spá fyrir um horfur næstu vikur og mánuði.

Vonuðust til að fleiri uppsagnir yrðu dregnar til baka

Þá hefur það haft mikil áhrif fyrir Icelandair að Bandaríkin eru enn nánast lokuð fyrir ferðamönnum vegna COVID-19 og má segja það sama um fleiri flugfélög sem fljúga til Ameríku.

Fram kemur að það hafi verið von FÍA að fleiri uppsagnir yrðu afturkallaðar vegna ríkulegs framlags flugmanna á ýmsum sviðum síðustu mánuði með vísan í útreikninga sem sýndu bæði þörf fyrir fleiri flugmenn og hagræði af því að afturkalla uppsagnir á sama tíma en sú varð ekki raunin.

Í dag eru 17 brottfarir áætlaðar frá Keflavíkurflugvelli og þar af átta brottfarir á vegum Icelandair sem eru flug til Oslóar, London Heathrow, Amsterdam, Frankfurt, Parísar auk þriggja flugferða til Kaupmannahafnar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga