flugfréttir
Ný A330 breiðþota fer beint í geymslu eftir afhendingu
Aer Lingus fékk Airbus A330 breiðþotuna afhenta í seinustu viku
Írska flugfélagið Aer Lingus mun á næstunni senda splunkunýja Airbus A330 breiðþotu í geymslu sem afhent var til félagsins fyrir aðeins einni viku síðan.
Upphaflega stóð til að Airbus A330 breiðþotan færi beint í umferð þar sem háannatíminn hefði
átt að vera í hæstu hæðum þessa daganna líkt og hjá öðrum flugfélögum en vegna dræmrar
eftirspurnar eftir farmiðum vegna kórónaveirufaraldursins þá verður flugvélin send nánast beint
í geymslu á Spáni eftir afhendingarflugið frá Airbus verksmiðjunum í Toulouse.
Flugvélin mun bætast í hóp tveggja annarra Airbus A330 breiðþotna félagsins á flugvellinum
í Ciudad Real á Spáni þar sem hún verður geymd um óákveðinn tíma.
Fergus Wilson, yfirmaður yfir viðhaldsdeild Aer Lingus, segir að vegna ferðatakmarkana og kröfu
um 14 daga sóttkví á Írlandi þá séu mjög fáir sem eru að bóka flug þessa daganna og eftirspurnin
mjög lítil eftir flugi og hafi félagið því ekki enn not fyrir breiðþoturnar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.