flugfréttir

ICAO gert að taka fyrir mál Qatar Airways

- Hafa í 3 ár ekki fengið að fljúga gegnum lofthelgi fjögurra nágrannalanda

20. júlí 2020

|

Frétt skrifuð kl. 13:28

Flugfloti Qatar Airways á flugvellinum í Doha

Qatar Airways hefur leitað réttar síns og höfðað dómsmál gegn fjórum nágrannaríkjum á Arabíuskaganum sem hafa í þrjú ár meinað flugfélaginu aðgangi að lofthelgi landanna.

Málið hófst með pólitískum deilum árið 2017 er stjórnvöld í Sádí-Arabíu, Bahrain, Sameinuðu arabísku furstadæmunum og í Eygptalandi ákváðu að banna Qatar Airways að fljúga í gegnum lofthelgi þessara landa þar sem löndin fjögur töldu að flugfélagið væri að styðja við bakið á hryðjuverkum.

Qatar Airways hefur kvartað undan stöðunni við Alþjóðaflugmálastofnunina (ICAO) og sagt að með þessu séu löndin að brjóta Chicago-sáttmálann sem undirritaður var árið 1944 þar sem fram kemur að öll aðildarlönd eigi að tryggja óhefta og greiða flugumferð gegnum sína lofthelgi.

Alþjóðadómstóll Sameinuðu þjóðanna hefur nú fyrirskipað ICAO að taka málið í sínar hendur en Qatar Airways fer fram á háar skaðabætur frá löndunum fjórum þar sem félagið hefur tapað miklu fé á því að þurfa að láta flugvélar sínar leggja á sig lengri flugleiðir til og frá Doha sem hefur lengt flugtímann til fjölda áfangastaða með tilheyrandi eldsneytiskostnaði.

Einhver tími gæti þó liðið þangað til að breytinga er að vænta þar sem ICAO mun ekki taka málið fyrir fyrr en á næsta ári og eftir það á eftir að koma í ljós hvort að nágrannalöndin fjögur muni aflétta banninu fyrir Qatar Airways.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga