flugfréttir

Margrét ráðin yfirflugkennari hjá Flugakademíu Íslands

20. júlí 2020

|

Frétt skrifuð kl. 21:55

Margrét Elínar Arnarsdóttir hefur verið ráðin sem yfirflugkennari hjá Flugakademíu Íslands

Margrét Elín Arnarsdóttir hefur verið ráðin sem yfirkennari hjá Flugakademíu Íslands sem hefur fengið nýtt nafn í kjölfar sameiningu Flugakademíu Keilis og Flugskóla Íslands.

Margrét Elín hefur viðamikla reynslu úr flugiðnaðinum en hún hefur starfað sem flugmaður hjá Icelandair, flugumferðarstjóri hjá Isavia auk þess sem hún starfaði sem flugkennari hjá Flugakademíu Keilis þar sem hún kenndi bæði bóklega og verklega flugkennslu.

„Ég er mjög spennt fyrir komandi tímum. Stærsta verkefnið til að byrja með er að innleiða uppfærða samevrópska námsskrá. Það er líka vert að minnast á það að þrátt fyrir að flug sé í lágmarki núna vegna veirufaraldurs, þá hefur sagan sýnt okkur að besti tíminn til að læra flug sé í kreppu. Það kemur á endanum uppsveifla í fluginu aftur og þá er um að gera að vera tilbúinn,“, segir Margrét Elín, nýráðin yfirkennari Flugakademíu Íslands.

Flugakademía Íslands er stærsti flugskóli landsins og einn sá öflugasti á Norðurlöndunum en þann 14. júní sl. útskrifuðust 78 atvinnuflugnemar frá skólanum sem er stærsta einstaka brautskráning atvinnflugnema á Íslandsi frá upphafi.

Nú þegar er orðið fullt í einn bekk á haustönn og búið að opna fyrir umsóknir í annan bekk en umsóknarfrestur rennur út þann 15. ágúst.

„Við bjóðum Margréti hjartanlega velkomna til starfa. Það er magnað að fá svona öflugan og faglegan kennara til liðs við okkur og við hlökkum mikið til að starfa með henni,“ segir Björn Ingi Knútsson, forstöðumaður og rekstrarstjóri flugakademíunnar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga