flugfréttir
Semja við Piper Aircraft um kaup á 100 kennsluflugvélum
Piper Archer kennsluflugvélar flugskólans ATP Flight School
Bandaríski flugskólinn ATP Flight School hefur gert samkomulag við Piper Aircraft flugvélaframleiðandann um kaup á 100 flugvélum af gerðinni Piper Archer TX og hefur flugskólinn einnig fengið sex fyrstu kennsluvélarnar afhentar.
ATP Flight School er einn stærsti flugskóli Bandaríkjanna með 402 kennsluflugvélar og eru flestar þeirra af Piper-gerð en flugskólinn hefur einnig margar Cessna 172 flugvélar í flota sínum.
Þrátt fyrir ástandið í fluginu í dag vegna COVID-19 heimsfaraldursins
þá sér flugskólinn fram á að iðnaðurinn eigi eftir að taka við sér að nýju
og að eftirspurnin eftir flugmönnum eigi eftir að koma til baka af fullum krafti.
Yfir 80.000 atvinnuflugmenn í Bandaríkjunum munu ná 65 ára starfslokaaldri á næstu
20 árum auk fleiri flugmanna sem eiga sennilega eftir að láta fyrr af störfum.
„Þrátt fyrir stöðuna í dag þá verður eftirspurnin eftir flugmönnum samt sem áður meiri en afkastagetan í flugkennslu í heiminum ræður við“, segir
Michael Arnold, markaðsstjóri ATP Flight School.
ATP er starfræktur á 47 stöðum í Bandaríkjunum og hafa þar af sex flugskólar verið teknir í notkun á þessu ári og er stefnt á að opna fimm til viðbótar fyrir lok ársins.
„Það tekur um tvö ár að öðlast þau réttindi sem til þarf til þess að geta sótt um starf sem flugmaður og þess vegna eru margir sem kjósa að fjárfesta í þessu
námi núna svo þeir verði tilbúnir til að sækja um í framtíðinni“, bætir Arnold við.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.