flugfréttir

Qatar Airways setur allar A380 risaþoturnar í geymslu

21. júlí 2020

|

Frétt skrifuð kl. 07:14

Airbus A380 risaþota Qatar Airways í lendingu á Heathrow-flugvelli

Qatar Airways hefur ákveðið að leggja öllum Airbus A380 þotum félagsins í langtímageymslu tímabundið sem telja 10 risaþotur á sama tíma og samkeppnisflugfélag þess, Emirates, er byrjað að fljúga sínum A380 risaþotum aftur eftir kórónaveirufaraldurinn.

Qatar Airways segir í yfirlýsingu sinni að það sé hvorki hagkvæmt rekstrarlega séð né umhverfislega að nota risaþoturnar eins og ástandið er í flugheiminum í dag og segir félagið einnig að A380 risaþoturnar séu að losa 80% meira af kolefnum út í andrúmslofið í samanburði við Airbus A350 þoturnar með tilliti til sætafjölda.

Ekki er víst að risaþoturnar verði samt mikið lengur í notkun hjá Qatar Airways þegar félagið mun hefja notkun á þeim að nýju þar sem félagið stefnir á að vera búið að losa sig við þær árið 2024 en margir sérfræðingar í fluginu telja að um það leyti gæti flugumferðin í heiminum verið farin að ná sér að fullu eftir COVID-19 faraldurinn.

Þess má geta að Qatar Airways á von á 29 þotum til viðbótar frá Airbus af gerðinni A350-1000, sextíu 777X breiðþotum frá Boeing og 23 Dreamliner-þotum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga