flugfréttir
Sóttvarnir lengja viðdvöl um 20 mínútur hjá airBaltic
- AirBaltic bætir einni A220 þotu við í leiðarkerfið á viku
Airbus A220 þota airBaltic
Flugfélagið airBaltic segir að sótthreinsun eftir hverja flugferð með Airbus A220 þotunum bæti 20 mínútum við hvern viðsnúningstíma hjá félaginu sem lengir hverja viðdvöl upp í tæpa klukkustund.
Martin Gauss, framkvæmdarstjóri airBaltic, segir að fyrir tíma kórónaveirunnar
hafi Airbus A220 flugvélar félagsins þurft að meðaltali um 40 mínútur til að undirbúa sig
fyrir heimflugið en með sóttvörnum vegna COVID-19 sé sá tími komin upp í eina
klukkustund.
Allt farþegarýmið sé sótthreinsað um leið og farþegar eru farnir frá borði og séu
gerðar tilbúnar andlitsgrímur og sóttvarnarklútar fyrir næstu farþega áður en þeir
fara um borð í vélarnar.
Gauss segir að tæknilega séð sé airBaltic með 11 Airbus A220 þotur í umferð
hverju sinni og sé einni þotu bætt við aftur í leiðarkerfið á hverri viku á meðan
félagið er hægt og rólega að fjölga flugferðum á ný.
Framkvæmdarstjórinn er bjartsýnn á framhaldið og sannfærður um að airBaltic
og önnur flugfélög eigi eftir að ná sér að fullu eftir heimsfaraldurinn.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.