flugfréttir

FAA útlistar síðustu skrefin fyrir endurkomu 737 MAX

- Líklegt að fyrstu MAX-vélarnar byrji að fljúga aftur í nóvember eða desember

22. júlí 2020

|

Frétt skrifuð kl. 07:27

Boeing 737 MAX 7 tilraunaþotur Boeing við verksmiðjurnar í Renton

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) lýstu því yfir í gær að til stendur að gefa út yfirlýsingu fljótlega varðandi næstu skref sem framundan er varðar kyrrsetningu Boeing 737 MAX flugvélanna sem hafa verið úr umferð um allan heim frá því í mars árið 2019.

Opnað verður á næstunni fyrir skoðanir fyrir aðila innan flugiðnaðarins auk fleiri aðila sem geta komið á framfæri athugasemdum í 45 daga er varðar þær hönnunarbreytingar sem gerðar hafa verið á svokölluðu MCAS-kerfi og það hluti af lokaskrefinu áður en flughæfnisvottun vélanna verður gefin út að nýju.

Talið er að þetta sé vísir að því að FAA ætli sér að aflétta flugbanni vélanna fljótlega sem þýðir að Boeing 737 MAX gæti þá hafið sig til flugs að nýju í Bandaríkjunum fljótlega en samkvæmt heimildum frá aðila, sem þekkir til málsins, þá er ósennilegt að það verði fyrr en í fyrsta lagi seinnipartinn í október.

Eftir að lokað verður fyrir athugasemdir að þessum 45 dögum liðnum munu bandarísk flugmálayfirvöld fara yfir þá punkta og ummæli sem borist hafa og þær færðir fyrir alþjóðlega nefnd sem stofnuð var vegna kyrrsetningu Boeing 737 MAX vélanna sem nefnist Joint Operation Evaluation Board (JOEB) auk nefndar sem kallast Flight Standardization Board (FSB).

Mögulegt er að flugfélög í Bandaríkjunum geti farið að fljúga Boeing 737 MAX þotunum aftur fyrir lok ársins

Að því loknu mun önnur nefnd, sem nefnist 737 MAX Technical Advisory Board (TAB), sem samanstendur af sérfræðingum frá flugmálayfirvöldum í níu löndum fara yfir lokatillögur og fullkláruð gögn sem varðar þær breytingar sem gerðar hafa verið í samræmi við reglugerðir frá FAA.

Að því loknu kemur að því að bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) munu taka ákvörðun um endurútgáfu á flughæfnisvottun fyrir Boeing 737 MAX og verður þá gefin út fyrirmæli til flugfélaga með útlistun á þeim breytingum sem flugfélög þurfa að framkvæma á hverri Boeing 737 MAX þotu sem þau hafa fengið afhenta áður en þær geta farið að fljúga aftur.

Að öllu jöfnu má gera ráð fyrir því að Boeing 737 MAX vélarnar verði farnar að fljúga aftur vestanhafs fyrir lok ársins miðað við þá vinnu sem eftir er en þess má geta að hvenær flugvélarnar geta farið að fljúga í öðrum löndum utan Bandaríkjanna fer eftir ákvörðun flugmálayfirvalda í hverju landi fyrir sig.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga