flugfréttir
Jet Time í Danmörku sækir um gjaldþrotaskipti
- Ætla stofna strax nýtt flugfélag á grunni þess gamla
Boeing 737-700 þota Jet Time í geymsluá Cotswold-flugvellinum í Bretlandi
Danska leiguflugfélagið Jet Time er gjaldþrota og hefur félagið hætt starfsemi sinni en félagið óskaði í gær eftir því að verða tekið til gjaldþrotaskipta fyrir dómstóli í Kaupmannahöfn.
Lars Thuesen, eigandi félagsins, segir að til standi að stofna nýtt flugfélag á grunni þess gamla og verða
einhverjar eignir félagsins færðar yfir á nýja flugfélagið um leið og lokið verður við að koma því á fót.
Ef kórónaveirufaraldurinn hefði ekki komið upp hefði Jet Time flogið með 350.000 íbúa Norðurlandanna
til sólarlanda í sumar í þeim sjö Boeing-þotum sem félagið hafði á leigu en floti félagsins samanstóð
af tveimur Boeing 737-700 þotum og fimm flugvélum af gerðinni Boeing 737-800.
Um 400 manns störfuðu hjá Jet Time sem má segja að hafi verið eina danska flugfélagið
sem var eingöngu starfrækt í Danmörku sem sinnti millilandaflugi með þotum.
Þann 25. júní sl. sagði Jet Time upp 313 af þeim 342 starfsmönnum sem störfuðu hjá félaginu sem
markaði upphafið að endinum í sögu félagsins sem nær 14 ár aftur í tímann.
Sækja um nýtt flugrekstrarleyfi undir nánast sama nafni
Jet Time hefur haft aðsetur í Kastrup í Tårnby-hverfinu nálægt flugvellinum í Kaupmannahöfn og var félagið
stofnað af hópi danskra fjárfesta árið 2006 en fyrsta áætlunarflugið var farið þann 19. september það árið.
Jet Time var stofnað í september árið 2006
Vonir voru gerðar um að félagið gæti byrjað aftur að fljúga í október í haust með tveimur Boeing 737-800
þotum en í ljós kom að skuldir félagsins voru orðnar of miklar en félagið hafði þegar tapað um 17 milljörðum
króna í ár auk tekjumissis vegna COVID-19 heimsfaraldursins.
Lars Thuesen hefur þegar sótt um flugrekstarleyfi fyrir nýtt flugfélag sem ber nánast sama nafn
og hefur verið sótt um leyfi undir nafninu „Jettime a/s“ en gamla flugrekstarleyfið var skráð
fyrir nafninu „Jet Time a/s“.
Til stendur að endurráða um 26 fyrrverandi starfsmenn til nýja flugfélagsins sem mun byrja að byggja
upp starfsemina um leið og ferðatakmarkanir verða afnumdar í flestum þeim löndum sem félagið
ætlar sér að fljúga til og ætlar félagið að endurnýja leigusamning á fimm farþegaþotum með stefnuna
á að vera komið með 10 þotur fyrir sumarið 2021.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.