flugfréttir
Sameina nýja tegund af flugrita og hljóðrita í einn búnað
- Airbus A320neo fyrstar til að koma með SRVIVR25 búnaðinn frá L3Harris
Bæði bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) og EASA í Evrópu hafa gefið út vottun fyrir nýja flugritabúnaðinum
Nýjar Airbus A320neo þotur munu á næstunni koma með nýrri tegund af flugritum þar sem búið verður að sameina flugrita og hljóðrita í einn búnað sem framleiddur er af fyrirtækinu L3Harris Technologies.
Sá hluti búnaðarins sem tekur upp hljóðupptökur í stjórnklefa vélarinnar mun geta tekið
upp 25 klukkustundir af efni og 70 klukkustundir af flugupplýsingum úr flugvélinni.
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa gefið út vottun fyrir nýja flugritabúnaðinum sem
nefnist SRVIVR25 og þá
er búnaðurinn frá L3Harris sá fyrsti sem uppfyllir nýlegar kröfur frá Flugöryggisstofnun
Evrópu (EASA) sem fara fram á að hljóðritar í farþegaflugvélum eigi frá og með 1. janúar árið
2021 að taka upp hljóðupptökur í að minnsta kosti 25 klukkustundir.
Þá vinnur L3Harris einnig að þróun á sambærilegum flugrita fyrir Airbus A350 og A330 þoturnar og munu flugritarnir síðar koma með möguleika á að senda beint upplýsingar í gegnum gervihnött sem býður upp á möguleika til að sækja gögn þrátt fyrir að ekki sé búið að finna flak flugvélar ef slys ber af hönum sem hjálpar einnig við að staðsetja flakið.
Terry Flaishans, forstjóri L3Harris, segir að þetta kerfi býður upp á „ítarlegasta magn
af upplýsingum“ sem nokkur flugriti býr yfir og munu flugfélög fá aðgang að ýmsum gögnum
sem hefðbundnir flugritar og hljóðritar í dag búa ekki yfir.
„Flugrekendur munu með fljótum hætti ná að niðurhalla öllum gögnum gegnum upplýsingastreng
og fá strax í hendur upplýsingar úr stjórnklefanum sem býður upp á tafarlausa greiningu
varðandi það sem átti sér stað í flugvélinni“, segir Flaishans.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.