flugfréttir
British Airways nær samningum við flugmenn félagsins
- Lækka strax um 20 prósent í launum
Flugmenn British Airways munu á næstu dögum kjósa um nýja kjarasamninginn
Stjórn breska flugfélagsins British Airways hefur náð að semja við flugmenn félagsins, sem eru félagsmenn í breska flugmannafélaginu BALPA, eftir þriggja mánaða kjaradeilur.
Kjarasamningurinn mun koma í veg fyrir að um 1.200 flugmenn missi starfið sitt
en 4.300 flugmenn félagsins verða þó að taka á sig launalækkun með tilkomu samningsins.
Í nýja samningnum eru meðal annars ákvæði um lækka starfshlutfall auk
atriða er varðar starfslok flugmanna en sá liður sem kemur að kjaraskerðingu
inniheldur tafarlausa 20% launalækkun meðal flugmanna sem mun svo
minnka niður í 8% launalækkun á næstu tveimur árum þar til launin hækka
svo aftur í sömu upphæð til lengri tíma litið.
British Airways ætlar sér ekki að segja upp neinum flugmönnum og verða
um 300 flugmenn settir „á bið“ og fengnir svo aftur til starfa um leið
og eftirspurn eftir flugi nær sér aftur á strik.
Flugmenn British Airways munu á næstu dögum kjósa um nýja kjarasamninginn
og verður opið fyrir kosningu til 30. júlí næstkomandi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.