flugfréttir
Fyrsta PC-24 sjúkraþotan fyrir Svíþjóð flýgur sitt fyrsta flug
Fyrsta Pilatus PC-24 sjúkraþotan í fyrsta tilraunarfluginu fyrir afhendingu
Fyrsta Pilatus PC-24 sjúkraþotan fyrir sænsku sjúkraflugþjónustuna KSA (Kommunalförbundet Svenskt Ambulansflyg) flaug fyrir helgi sitt fyrsta flug frá verksmiðjunum í Sviss áður en þotan verður afhent til Svíþjóðar.
Minna en ár er síðan að KSA lagði inn pöntun til Pilatus
í ágúst í fyrra með samningi um kaup á sex sjúkraþotum af þessari gerð
og fór fyrsta eintakið sem smíðað hefur verið fyrir KSA í loftið frá Buochs-flugvellinum í Sviss þann 22. ágúst sl.
Með þotunum, sem nefnast Super Versatile Jet, mun
sænska sjúkraflugþjónustan tryggja almenningi öruggar og skjótar flugsamgöngur með sjúklinga um Svíþjóð sem
teygir sig yfir 1.500 kílómetra frá norðri til suðurs en sjúkraþjónustan hefur höfuðstöðvar í Luleå í norðurhluta landsins.
Þoturnar verða afhentar til fyrirtækisins Aerolite AG sem annast
sjúkraflugið fyrir sænsku sjúkraflugþjónustuna og koma þær
í nýjum búningi sem skarta sænsku fánalitunum.
Pilatus PC-24 er mjög hraðfleyg þota sem getur lent og tekið á loft
á stuttum flugbrautum sem hentar vel þegar verið er að sækja
sjúklinga á afskekktum svæðum í Svíþjóð.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.