flugfréttir
Lítil Cessna-flugvél með fjóra um borð fórst í Sviss
Flugvélin bar skráninguna HB-TLF
Fjórir létust í flugslysi er lítil flugvél af gerðinni Cessna 172 Skyhawk fórst í fjalllendi í svissnesku Ölpunum um helgina.
Flugvélin fór í loftið frá flugvellinum í bænum Blatten í Sviss sl. laugardag en um borð
var flugmaður auk þriggja farþega.
Skömmu eftir hádegi að staðartíma fékk lögregla tilkynningu um að lítil flugvél
hafði brotlent í fjallshlíð á Gletscherspitz-svæðinu og var tilkynnt um mikinn reyk
sem lagði frá flaki vélarinnar.
Björgunarlið auk sjúkraþyrlu var ræst út auk þess sem rannsóknarnefnd flugslysa
í Sviss sendi sérfræðinga á vettvang en í ljós kom að enginn þeirra sem var um borð
í flugvélinni komst lífs af.
Flugvélin fór í loftið frá Blatten um morguninn og var von á henni aftur seinnipartinn.
Þeir sem voru um borð í vélinni voru tveir Svisslendingar, 66 ára og 50 ára og tveir frá Austurríki sem voru 50 ára og 46 ára.
Flak flugvélarinnar í fjallshlíð í svissnesku Ölpunum
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.