flugfréttir
Flugfreyjur samþykktu nýja kjarasamninginn
Boeing 757 þotur Icelandair á Keflavíkurflugvelli
Flugfreyjur og flugþjónar hjá Icelandair hafa samþykkt nýjan kjarasamning sem gerður var við Flugfreyjufélag Íslands fyrr í þessum mánuði.
Icelandair tilkynnti þann 17. júlí sl. að félagið hefði ákveðið að segja upp öllum flugfreyjum og flugþjónum
félagsins þar sem ítrekaðar tilraunir til þess að ná sáttum hefðu ekki borið árangur en tveimur dögum
síðar var gerð ein tilraun í viðbót til þess að setjast að samningaborðinu sem endaði með nýjum kjarasamningi.
Sá kjarasamningur fór fyrir kosningu og var hann í gær samþykktur með miklum meirihluta en 83% þeirra sem greiddu
atkvæði greiddu með samningnum en um 13 prósent vildu ekki samþykkja hann.
Icelandair gerir ráð fyrir að um 200 flugfreyjur muni starfa hjá félaginu núna í ágúst og í september og
segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, að mikil ánægja ríki með að Flugfreyjufélag Íslands hafi kosið
með samningnum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.