flugfréttir
Jet2 frestar öllu flugi til Spánar fram í ágúst
Flugvélar lágfargjaldafélagsins Jet2.com
Breska sólarlandaflugfélagið Jet2.com hefur ákveðið að fresta öllum flugferðum til meginlands Spánar og til Portúgal frá og með morgundeginum.
Jet2 ætlar meðal annars að fresta því að fljúga til Almeria, Alicante, Malaga, Murcia
og til Faró fram í miðjan ágúst en ástæðan er vegna ákvörðunar bresku ríkisstjórnarinnar
sem tilkynnti um helgina að allir farþegar sem koma frá Spáni þurfa að fara í tafarlausa
14 daga sóttkví vegna fjölda nýrra tilvika af kórónaveirunni.
Jet2 segir að flugfélagið hafi enn ekki gert neinar breytingar á flugi til og frá Mallorca og
Kanaríeyjum en frekari tilkynning um framhaldið er að vænta þann 17. ágúst næstkomandi.
Jet2 er þriðja stærsta áætlunarflugfélag Bretlands á eftir easyJet og British Airways og hefur félagið haft yfir 90 þotur í flota sínum sem hafa flogið til 82 áfangastaða.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.