flugfréttir
Laudamotion leggst af og Lauda Europe kemur í stað
Airbus-þota flugfélagsins Laudamotion
Ryanair Group hefur tilkynnt um að til standi að leggja niður dótturflugfélagið Laudamotion og stofna nýtt flugfélag sem fær nafnið Lauda Europe.
Starfsemi Laudamotion mun leggjast af í haust og verður í framhaldinu sótt um nýtt flugrekstarleyfi
fyrir Lauda Europe sem mun hefja áætlunarflug í nóvember.
Með þessari breytingu verður hægt að sameina áhafnir félagsins í Þýskalandi og á Spáni
svo starfsmenn geti greitt skatta í sínum löndum en Laudamotion er í dag skráð í Austurríki.
Ryanair Group tekur fram að farþegar muni ekki verða fyrir neinum áhrifum af þessum breytingum
og ferðaáætlanir þeirra muni ekki raskast.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.